<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31

Aðalbloggin
Vinkonurnar
Árný
Ása
Dagný
Heiðdís

Lilja
Ragga á Svalbarða
Sandra
Sirrý

Ársælsblogg
Björgunarsveitin

Landsbjörg
Boggi
Einar Elí
Gaui
Halla
Inga
Ómar
Viddi

Annað fólk
Egill

Guðrún Friðriks
Ingibjörn
Katla
Kolla
Lísa og Rakel
Þorbjörg
Fyndinn bloggari

Fréttir
CNN

BBC News
Sky news
Mogginn
Vísir
RUV
Berlinske Tidende

Dýrin
Dýraland

Dýraríkið
Trítla
Fiskó
Dýraheimur
Dýrabær
Furðufuglar og fylgifiskar
Fiskaspjall
Dýralíf
Fiskabúr
Dagfinnur dýralæknir

Leit og fróðleikur
Google

Google Scholar
Wikipedia
Wikimapia
Wikibooks
Veðurvaktin
Belgingur

Ýmislegt
Vinstri Grænir

Já.is
Skjárinn.is
Doktor.is
Femin.is
Kaupþing
Vegagerðin - Umferð og færð
4x4
Science daily
Laugar
IKEA
Amazon
Breska Amazon
69
B2
Hugi
Klippur
Bíó
Kvikmyndir og bíó
Happy Tree Friends
ESA
NASA
Space.com
Star Trek
Garfield
Hve margir heita þínu nafni?
bored.com

Björgunarsveitir
Slysavarnafélagið Landsbjörg

Ársæll
Hjálparsveit Skáta Reykjavík
Hjálparsveit Skáta Kópavogi
Hjálparsveit Skáta Garðabæ
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík
Björgunarsveit Hafnarfjarðar
Kyndill
Kjölur
Björgunarfélag Árborgar
Björgunarsveitin Suðurnes
Björgunarhundasveit Íslands
Leitarhundar SL
Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins
RNLI - Breska björgunarbátafélagið

Tónlist
Lyrics.com

Rokk.is
Grand Rokk
Gaukurinn
xfm
Bubbi
Djosúa
Lada Sport

Leikir
Sudoku

Isketch
Púsl
Pop Cap
Big Fish Games
Yahoo leikir
Game Rival
Planet Spogg
MSN Games
123 Games

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Tuesday, July 10, 2007
Síðasta færslan hérna megin... ?

Jæja... ég ákvað að prófa nýtt blogg... nebblega moggabloggið...
Ég var einhverntímann búin að skoða þetta en slóðin sem mig langaði í var ekki laus... en í gær athugaði ég þett upp á gannið og viti menn -slóðin var laus.

Svo ég ákvað að slá til og prófa... í versta falli þá kem ég aftur á þessa síðu - ekki eins og ég bloggi nú oft hehe ;)

En allavegana... hérna er slóðin á nýja bloggið www.eva.blog.is

Þar til næst - síja ;)


Posted at 19:20 by evahlin
Make a comment  

Monday, June 04, 2007
Stækkandi fjölskylda

Litla fjölskyldan mín er alltaf að stækka... Nú hefur Moli bæst í hópinn. Hann er kærastinn hennar Ronju og er sennilega um 6 mánaða gamall. Hann er þrílitur rósetta, svartur, brúnn og hvítur og hann er algjör töffari... meira svona harða þögla týpan miðað við Ronju (sem skoppar út um allt) en hleypur svo í felur inní húsið sitt við minnsta hljóð sem honum finnst ógna sér og sínu kúlness... Moli er með mikinn makka og sítt að aftan eins og töffurum sæmir... það er nebblega einn lokkur á bakinu á honum sem er frekar síður og það lítur út eins og hann sé með skott :P
Ronja er aðeins of ung ennþá til að vera í sama búri og Moli svo þau eru bara í sitt hvoru búrinu og kallast á. Þau reyndar fá að hittast undir eftirliti í smástund á hverju kvöldi - og þá er sko fjör... Moli er mjög upptekinn við að sýna karlmennsku sína og reyna við Ronju á meðan hún skoppar um búrið og er meira upptekin við að borða matinn hans, prófa húsið hans og hlaupa undan honum... svo krúttleg :P

Föstudaginn 25. maí síðast liðinn stækkaði Lúlli litli bró heldur mikið þegar hann útskrifaðist úr Kvennó :) Til hamingju með það Lúlli... Þó hann sé svona gamall þá er hann samt of lítill til að fara í Háskólann - það er ekki alveg að passa hehe Ég opinberaði líka hausinn á mér fyrir famililíuna þarna... það var ótrúlega erfitt skref en svo mikill léttir. Nú veit fólk að þessu og ég þarf ekki að fela neitt. Beint eftir veisluna fór ég svo og sótti Mola minn... góður dagur...

Síðan var sjómannadagurinn í gær. Það var mjög gaman eins og venjulega... þrátt fyrir frekar glatað veður, en það var samt skárra núna en í fyrra. Ársæll var með róðrarlið - geysisterkt róðrarlið... Við erum búin að vera að æfa okkur undanfarna viku en það dugði ekki til... við unnum ekki - veit ekki alveg hvað klikkaði sko en opinbera skýringin er að við erum björgunarsveit svo við ákváðum að vera síðustí okkar riðli til að líta eftir hinum bátunum og pikka upp ef einhver hefði dottið útí eða bát hvolft hehe Annars skilst mér að það væri mynd af okkur í róðrinum á bakhlið DV, hef reyndar ekki séð hana sjálf... 
Ég fékk smá tilbreytingu frá undanförnum sjómannadögum og var ég á bát  - sem var mjög skemmtilegt. Ég var fyrst á Rebbanum, sem er bátur sem er í Sæbjörg (slysavarnaskóli sjómanna á hana) en svo bilaði hann og þá færði ég mig yfir á Gróu P. sem er svona harðbotna slöngubátur - sami bátur og við gæsuðum Lilju á ;) Mjög mikið stuð og gaman að fá svona "hina hliðina" á deginum í staðinn fyrir að vera í landi... svo kom líka mynd af mér í Mogganum í dag, svipuð þessari (tekin af mbl.is) en frá öðru sjónarhorni...

Ég er í miðjunni, Óli formaður þarna fremst og Einar að stýra...

Þar til næst - síja ;)


Posted at 22:38 by evahlin
Comments (2)  

Saturday, May 19, 2007
Lengsta blogg ever !!

Haha... ég var næstum búin að gleyma hvert lykilorðið var inn á síðuna... Þýðir það ekki að maður er latur að blogga bara ? Ég hef reyndar alveg verið oft á leiðinni að kíkja hingað þegar mér dettur eitthvað sniðugt í hug - enda lítið annað að gera í vinnunni en að hugsa... en svo þegar ég kem heim þá er ég búin að steingleyma því sem var svona sniðugt. En jæja... ætli maður komi ekki með eitthvað, kanski það sem hefur gerst síðan síðast...

Ég er búin að "fjölga mér". Jújú... sætasti nagrís bæjarins er fluttur til mín. Hún heitir Ronja og er núna um 3 mánaða gömul. Hún er róshetta sem þýðir að hún hefur sveipi í feldinum... sem gerir hana enn krúttlegri því hún er með hanakamb :P Ronja er alveg svört fyrir utan smá hvítan blett í hanakambinum... Henni finnst iceberg og ferskt gras æði, elskar að kúra og er algjör töffari. Hún er líka duglegri en ég í leikfimi, tekur nokkra spretthringi í búrinu sínu á dag með tilheyrandi skrensi og sagi út um allt :P Mér fannst búrið hennar svo stórt áður en hún kom í það en núna er ég alveg að sjá það að það er engan veginn nógu stórt fyrir hana... Ætli ég skelli mér ekki bara á hjúmongus búr handa henni um leið og fjárhagurinn leyfir ... enda á hún ekki erfitt með að sjarma mig og er án efa eitt dekraðasta dýr vesturbæjarins.

Dagný vinkona er líka búin að fjölga sér. Hún og Leifur eignuðust lítinn gullmola 2.maí síðast liðinn. Til hamingju með það skötuhjú ;) Ekkert smá myndarlegur gutti, hann náði alveg að bræða mig þegar ég fékk að máta hann - þó svo að hann væri steinsofandi :P Hann grenjaði ekkert á meðan - sem er mjög óvenjulegt þegar kemur að mér og ungabörnum... Nú er bara að bíða eftir Lilju en það verður samt ekki fyrr en í byrjun júlí - kanski um það leiti sem ég mun blogga næst haha :P
En já... ég einmitt hitti Lilju í gær... lítur svo vel út með sætu kúluna sína... merkilegt hvað þetta er fljótt að líða.

Júróvisjón... Eigum við eitthvað að ræða þetta ? Þetta er bara sillí... mér finnst að Íslendingar eigi að gefa skít í þetta dæmi og hætta að taka þátt. Þetta kostar hvort sem er múltípeninga fyrir okkur og við fáum ekkert í staðinn... nema að horfa á lokakeppnina sem er keppni milli austurevrópulanda. Ég meina... ég lærði landafræði í skóla og síðan hvenær er Ísrael í Evrópu... Þegar mér var kennt þetta þá náði Evrópa inn helminginn af Tyrklandi eða eitthvað... En allavegana ég hélt smá júróteiti á fimmtudagskveldinu og bauð stelpunum. Við pöntuðum okkur mat og kjöftuðum. Dagný kom með Litla kút með sér... sem auðvitað tók alla athygli frá keppninni - algjört krútt. Það verður líka gaman að segja honum þegar hann er að drepast úr gelgju eftir fullt af árum að fyrsta partýið sem hann fór í var júróvisjónpartý hehe

Kosningar... það er enginn maður með mönnum nema að blogga smá um pólitíkina... Ég að sjálfsögðu er vinstri græn út í gegn og vonaðist til og eiginlega bjóst við að við mundum ná nýjum meirihluta með samfylkingunni... það tókst ekki en var þó frekar naumt. Við náðum þó að fella sitjandi ríkisstjórn. Í staðinn fáum við ríkisstjórn sem er D+S... sem er ekki svo slæmt. Grunar nú samt að þetta verði ansi hægri sinnuð stjórn. En það góða við þetta er að Steingrímur er enn í stjórnarandstöðunni og getur komið með snilldartakta og komment þegar hann fær að gagnrýna. Hver man ekki eftir því þegar hann missti sig í pontunni á Alþingi og kallaði Dabba gúngu og aumingja haha hann er snillingur...
Annars var ég að heyra umæli Geirs H. Haarde um stjórnarsamstarf sem hann lét útúr sér fyrir eitthvað 2 árum eða svo (- ég veit ég er eftir á og það er bannað að gera grín af mér :P hehe) Maðurinn sagði eitthvað á þessa leið "ef sætasta stelpan á ballinu er ekki tilkippileg þá má fá aðra ljótari því hún gerir sama gagn" Ég er ennþá að jafna mig og það eru komnir 3 dagar síðan ég heyrði þetta... Þessi maður er forsætisráðherra. Ég hélt að fólk léti ekki svona út úr sér haha Mamma hló líka af mér þegar hún sá hneikslunina hjá mér ennþá klukkutímum eftir að hafa heyrt þetta - og sagði svo bara "voða ertu saklaus" hehe... jú kanski er ég það þegar kemur að svona frá opinberum aðilum :P sumt hugsar maður en segir ekki...

Ég sat samt ekki heima og horfði á kosningavökuna. Ég eyddi helginni í Þórsmörk með 10.bekk Hagaskóla. Við fórum í hádeginu á föstudeginum upp eftir og komum til baka á sunnudeginum. Það er svo gaman að þessum krökkum og allir höguðu sér svo vel. Við fengum að hjúkra smá á fyrsta kvöldinu - ekki það að það sé eitthvað sem við viljum endilega gera en til þess erum við til staðar þarna. Við fengum hrós frá einum pabbanum sem var þarna og flygdist með okkur hjúkra stráknum eða ég tók þessu sem hrósi... hann sagði hann "ég ætla aldrei aftur að gera grín af græjuæði björgunarsveitanna"... Mig grunar að þetta sé nebblega ekki óalgengt viðhorf... en ég get alveg sagt að við fáum okkur bara það sem við þurfum til að geta gengið í flest það sem við lendum í. En það er gott að sjá að við getum breytt þessu viðhorfi... Við sáum svo um sig fyrir krakkana á laugardeginum sem heppnaðist alveg brillíant og allir voða sáttir. Móment laugardagsins var líklega þegar einn krakkinn fattaði þegar hann var staddur í miðjum klettinum að hann var með jógúrt í vasanum... að sjálfsögðu þurfti það að detta úr vasanum, lenda á veggnum, springa og gusast yfir Svavar (einn af okkur) sem var fyrir neðan klettinn að taka á móti krökkunum haha... hann fékk allavegana smá nesti :P Ég set myndir frá þessari helgi inn á björgunarsveitarsíðuna þannig að þið getið kíkt ef þið viljið.

Hárið fékk að fjúka alveg um daginn... Það er svolítið frelsandi og ég get bara markað það sem nýtt upphaf. Núna get ég bara einbeitt mér að ná bata, þarf ekki að fela neitt. Ég fór til hómopata (hommi frá Patreksfirði eins og Elli vill kalla það hehe). Ég er búin að taka allt matarræði í gegn. Búin að klippa út hvítt hveiti, hvítan sykur og ger, hætt að drekka alkóhól (nema kanski smá hvítvín þá í spari), ég er hætt að drekka allt gos, ég borða ekki rautt kjöt og hef minnkað mjólkurvörur niður í eins lítið og hægt er. Ég veit að þetta hjólmar ekkert voða spes en þetta var bara erfitt fyrstu vikuna. Núna er ég búin að fatta hvað það er hægt að borða ótrúlega mikið annað - svo mikið annað í boði. Ég er líka að dæla mig upp af remedíum og vítamínum og nálgast dagskammtur af vítamínum líklega um 30 töflur. Þetta fer þó alveg merkilega vel í maga - ef ég borða með :P Ég er líka farin að borða hafragraut - sem mér fannst alveg ógeð en ég braut brodd af oflæti mínu og smakkaði og viti menn... bara alveg ljómandi góður. En vóó fráhvarfseinkennin frá kókinu voru svakaleg... ég var varla viðræðuhæf í tvo daga, ég var ekkert smá skapstygg og með massívann hausverk sem engin verkjalyf virkuðu á. En í dag líður mér svo miklu betur - allir smákvillar sem voru að bögga mig eins og bakflæði og höfuðverkir eru nánast alveg horfnir... Þetta er vel þess virði ef þetta mun hjálpa mér að sigra - kemur svosem ekkert annað til greina ;)

Ég fann roðamaura hérna hjá mér um síðustu helgi - ég er brjáluð... ekkert smá lífseig og erfið kvikindi. Ég og foreldrar mínir höfum sagt þeim stríð á hendur og erum búin að eitra fyrir þeim og spreyja allt með killitbang og þjarki... ef þeir drepast ekki við þetta þá missi ég mig ... án gríns... ég kúgaðist í dag þegar ég leit undir lappirnar á mér og sá að ég var öll rauð... þeir eru ekki bara í glugganum og á gólfinu... ónei... þeir eru líka í rúminu mínu og á stofuborðinu og í vatnsglasinu mínu á náttborðinu þegar ég vakna á morgnanna... fann einn á m.a.s. í sveskjupokanum mínum sem var ekkert búinn að koma nálægt glugganum. Þetta er svo mikið ógeð... Ég veit ég er líffræðingur og allt það en ég bara höndla ekki roðamaura... og hrossaflugur :P Jakk... ómægod... hver á að drepa þær fyrir mig í sumar þegar þær fara að kíkja í heimsókn ? Hringja í pabba eða Lúlla haha og plata þá í heimsókn ? eða flýja íbúðina...

Annars er konan hérna við hliðina á mér búin að setja íbúðina á sölu... 19,7 millur takk fyrir !!! Íbúðin er jafnstór og mín og er alveg eins í laginu, en innréttingarnar eru reyndar ekki alveg eins. Sjitt sko... ég býst nú ekki við að hún nái að selja hana á þessu verði... annars er ég búin að græða fullt af monningum, sel bara íbúðina mína og flyt heim - með 4 millur í plús í vasanum :P

Ég sá á einu af þessum dýraspjöllum sem ég stunda grimmt þessa dagana að það var verið að gefa gára og búrið með... var næstum því búin að hringja og fá hann þar til ég var minnt á það að ég ætlaði aldrei að fá mér páfagauk eftir að geðsjúklingafuglinn okkar drapst í vor... eina sem mamma sagði var "Eva nei !!" haha... mamma farin að halda að ég sé að missa mig í þessu... Mig langar nebblega í lítið fiskabúr til að setja nýfæddu seiðin mín í. Annars góðar fréttir... ég sá mann á ganginum með hund um daginn og ég er nokkuð viss á því að hann búi hérna í stigaganginum mínum. Það þýðir bara eitt - að ég má kanski fá mér hund :) vúhú !! Það verður sko athugað á næsta húsfundi ;) Mig hefur langað í hund í fjöldamörg ár en aldrei fengið leyfir fyrir því heima hjá m&p... Ég reyndi einu sinni að setja þeim smá skilyrði - ég leyfði þeim að velja hund eða heitapott í garðinn - vildu frekar heitapottinn og ég held að ég hafi m.a.s. verið búin að fá pabba til að pæla í því af alvöru hehe... reyndar er enginn heitur pottur ennþá kominn svo þau hafa leikið á mig. Svo sá ég í mogganum einu sinni að auglýst var eftir fólki til að taka að sér fíl úr dýragarði... svo ég leyfði þeim að velja hund eða fíl... skemmst frá því að segja að mamma valdi fílinn en ég gat ekki flutt hann inn - það átti að ættleiða hann innan afríku - bömmer...

Ég er komin með nýjan þræl í vinnunni. Þessi er reyndar ekki róbot heldur Hollendingur... Svo ég er á ensku þessa dagana... Ég skil og tala ensku eins og festir en þegar maður þarf að tjá sig á "fræðimáli" á ensku þá endar bara með því að ég flissa af kjánaskapnum í sjálfri mér hehe. Ekki það að ég er eiginlega alveg að gefast upp á því... það er nefnilega soldið erfitt að halda uppi samtali á ensku þegar maður kemst ekki uppúr því að hugsa á íslensku... það koma ótrúlegustu orð og orðasamsetningar uppúr mér á ísl-ensku haha... En annars er ég komin með nett leið á vinnunni. Sama rútínan dag eftir dag eftir dag. Ég er búin að gera það í rúmlega ár og ég á tæplega ár eftir... frekar erfitt að hugsa til þess. Ég hef þess vegna ákveðið að hugleiða mögulega á nýju námi... það eru nokkrar hugmyndir komnar en það skýrist alveg á næstu vikum.

Ætli þetta sé ekki nægilega langt fyrir ykkur að lesa í bili.

Þar til næst - síja ;)


Posted at 23:02 by evahlin
Comments (9)  

Sunday, April 08, 2007
Fjölgun á Flyðró...

Nýjasta æðið sem situr í hausnum á mér þessa dagana er að eignast gælurottu. Ég bara verð að eignast gælurottu :P
Ég er búin að leita útum allt að einu slíku stykki en það er bara þannig að rottur eru ófáanlegar á Íslandi í dag - sem er bömmer... Sandra var samt svo góð að benda mér á að það er nóg af ræsisrottum hérna í vesturbænum en þær eru kanski ekki svo heilsusamlegar svona í heimahúsi...
Það var ein kona að rækta gælurottur fyrir kanski tveimur eða þremur árum en hún er hætt því núna vegna þess að stofninn hérna var orðinn svo innræktaður. Ein stelpa sem ég talaði við í gæludýrabúð stakk upp á því að ég mundi bara flytja þetta inn... eða sækja um það því heilbrigðiseftirlitið hlyti að láta undan ef það væru fleiri sem nenntu að sækja um þetta. Þetta er víst bara hellings skrifinskudæmi og kostar væntanlega sitt.

Þannig að fyrsta að ég get ekki fengið rottuna þá er ég núna að vinna í því að fá mér naggrís. Ég er komin með búrið og er að þrífa það og fínisera það og eftir páska ætla ég að reyna að fjárfesta í einum slíkum. Það merkilega við þetta allt saman er að það virðist vera frekar erfitt að fá sér naggrís, þeir eru frekar "sjaldgæfir" ef hægt er að segja það. Ég hélt að maður mundi bara skella sér í dýrabúðina og kaupa en það er víst ekki þannig. Í einni búðinni sem ég fór í er kominn biðlisti og í ég fann einn nagrís í annarri en svo er þetta bara ekkert til.
Ég held að maður verði bara að sitja um fólk sem á naggrísi og bíða eftir goti hjá þeim til að geta fengið unga hjá þeim. Í þeim tilgangi hef ég skráð mig sem notanda á þrjú gæludýraspjallsvæði á netinu. Ég ætla mér að fá litla hnoðra ;)

Nú fer allt að verða klárt fyrir fjölgun á Flyðró...

Gleðilega páska og allt það...

Þar til næst - síja ;)


Posted at 23:22 by evahlin
Comments (5)  

Friday, March 16, 2007
Rock 'n' roll will heal your soul

Nú ferða styttast í Eurovision... þá byrjar sá tími sem ég og Elfa sys sitjum saman, hlustum á lögin og spáum í spilin... Ég er búin að hlusta of oft á framlag okkar íslendinga - Valentine lost - í dag... og horfa á myndbandið... Mjög flott og vel heppnað myndband, passar mjög vel við lagið, soldið dark, hrjúft og hrátt...

Eiríkur rauði er svo töff í myndbandinu :P ég veit ekki hvað það er við hann ég bara sit og horfi alveg dolfallin... hann er svo tekinn í framan, svo dark, svo þrunginn einhverju og svo mikilfenglegur... hann er að kafna úr karlmennsku... þjakaður af einhverju - líklega valentæninu sem hann missti sko... Ég vildi bara að rauða hárið fengi að njóta sín ;) Karlmenn eiga ekki að vera með sítt hár en Eríkur er undantekning - það er deffinetlí hluti sjarmans hjá honum...

Jii stelpur !!! Ég er að segja ykkur að hann er svo sexy... ég hélt ég ætti aldrei eftir að segja þetta um mann sem er eldri en ég en ómæ... það er eitthvað...

Strákar - svona eiga karlmenn að vera... ekki súkkulaðibrúnir með strípur og mjúka slétta húð ;)

Setningin "Rock 'n' roll will heal your soul when broken hearts lose all control" situr í mér og á einhvernveginn svo svakalega við mig þessa dagana...

Myndbandið sést hérna á heimasíðu RUV og ég læt hér textann fylgja sem er nokkuð góður - allavegana mun betri en íslenski textinn...


Valentine Lost

I'll let the music play
while love lies softly bleeding.
In heavy hands on shadowlands.
As thunder clouds roll in
sunset is receding.
No summer wine - no Valentine.

A tiger trapped inside a cage.
An actor on an empty stage.
Come see the show!
Rock 'n' roll can heal your soul
when broken hearts lose all control.

Some rivers still run dry
and jungles burn to embers.
Gold autumn days, must fade to grey.
There is a reason why
a haunted man remembers
one frozen night - his darkest day (oh...)

A tiger trapped inside a cage.
An actor on an empty stage.
Come see the show!
Rock 'n' roll will heal your soul
when broken hearts lose all control.

Passion killed by acid rain.
A rollercoaster in my brain.
But, how would you know!
In your satin, silk and lace...
Another time another place.

A tiger trapped inside a cage.
An actor on an empty stage.
Come see the show!
Rock 'n' roll will heal your soul
when broken hearts lose all control.

A love let loose and painted black.
A train stuck on a broken track.
I'll let it go!
Rock 'n' roll has healed my soul.
The stage is set - on with the show!


Ahhh þetta lag er fast á heilanum á mér - og Eiki sexy beast... hehe

Þar til næst - síja ;)


Posted at 01:24 by evahlin
Comments (2)  

Wednesday, February 28, 2007
Ómæ...

Ég lenti í furðulegu dæmi á mánudaginn... ég var á Orkunni að taka bensín... sjálfsalinn var eitthvað bilaður og vildi ekki lesa kortið svo ég bauð manninum sem kom á eftir mér að vera bara á undan... "já takk... Hvað segiru, ertu ennþá að vinna í Hjartaverd?"
Ég held að ég hafi horft á hann í svona mínútu áður en ég stundi uppúr mér "ha"...
Hann endurtók spurninguna og ég tautaði eitthvað um að vinna á landspítalanum... og þá bara kom uppúr honum "já er þá rútínan bara landspítalinn, skátar eða björgunarsveit og svona..."

Jiminn... ég hef ekki minnstu hugmynd ennþá hvaða maður þetta var...
Nýr stalker...?
Ómæ...

Þar til næst - síja ;)


Posted at 12:23 by evahlin
Comments (6)  

Monday, February 19, 2007
Bollabolla

Ég tók mig til og skoðaði síðuna og las það sem ég hef brallað síðan ég byrjaði með hana... Þetta var ótrúlega skemmtileg lesning - gaman að rifja upp hvað ég hef komist yfir á þessum tíma, svo margt brallað... Ég sá líka hvað ég bloggaði oft á meðan ég vann hjá Símanum en eftir að ég fékk vinnu sem virtur líffærðingur hjá ríkisstofnun hefur lítið farið fyrir sögum af mér... merkilegt...
Ekki það að ég hafi ekki nægan tíma til að hugsa og pæla á meðan ég er að vinna í sýnunum mínum ég bara kem þeim ekki alveg "á blað".
Ég ætla samt ekki að lofa neinum úrbótum því það fer bara í vitleysu og ég geri bara ennþá minna...

Ég hef nú lítið brallað síðan síðast. Kanski það sem ég man mest eftir í augnablikinu er að ég prófaði skvass... Það er ekkert smáskemmtilegt... ég sló að sjálfsögðu í gegn á vellinum og tapaði 15-0 en ég fékk samt verðlaun - marbletti og eysli í öxl eftir glæsilegar fórnir í boltann og mikil tilþrif...

Þar síðustu helgi tókum við Teddi æfingasessjón fyrir væntanlegt fagnámskeið í fjallamennsku. Laugardeginum var eytt í Gróubúð í allskyns línuvinnu og skemmtilegtheitum og sunnudagurinn fór í ísklifursæfingar á Sólheimajökli... Í stuttu máli sagt þá held ég að ég fresti þáttöku á námskeiðinu þar til á næsta ári - ég sökka í ísklifri... Ég hélt að teddi mundi missa sig þegar hann horfði á mig reyna við ísvegginn hehe og því meira sem við hlóum því meira sökkaði ég :P

Þessi helgi fór svo bara almenna leti og kósíheit... heimsóknir, bíó, júróvisjón, heitt bað og kaldur bjór og fluttningur á fiskabúrinu

Já júróvisjón... ég ætlaði sko ekki að horfa á þetta. Ég hef heyrt eitt og eitt lag úr keppninni og hefur mér fundist þetta vera frekar lásí allt saman... eiginlega bara skömm að senda eitthvað af þeim út. En þegar laugardagskvöldið kom þá "neyddist" ég náttúrulega til að setjast niður og missa mig í spennunni og einkunnagjöfum... Mig grunaði nú að Eiríkur mundi vinna en ég vonaði svo heitt að það mundi ekki gerast - hver fer núna í júróspjallþátt norðurlandanna ? Ég hef miklar áhyggjur af þessu... sem er ekki skrítið þar sem þættirnir eru bara snilld og margfalt skemmtilegri en keppnin sjálf. Minn maður var Jónsi og svo var ég laumuaðdáandi kúrekalagsins. Já laumu af því að enginn virðist fíla það nema ég og ég vildi ekki vera lögð í einelti :P En síðan þá hef ég tekist á við þetta og komið útúr skápnum með að fíla þetta... Mikið held ég að Pétur Jesú sé sár núna að koamst ekki út hehe hann var í meirahluta laganna en akkurat ekki sigurlaginu.

Brittney vinkona er að missa sig... eins og allir vita núna þá er hún á barmi taugaáfalls hárlaus með ný tattoo... það var án gríns bara breaking news á Sky News síðunni og CNN. Ég sat hérna heima bara með puttann á refresh takkanum geggjað spennt ... kanski er þetta lúkk að koma sterkt inn og ég snoði mig bara líka... samt bömmer að ég varð ekki á undan henni að gera þetta því þá gæti ég sagt að Brittney sé að herma...
Þetta er samt voða gott frí frá dramanu í kringum dauða Önnu Nichole - sem var yfirgengilegt, næstum yfirgegnilega fyndin :P

Svo núna er væntanleg klámráðstefna það heitasta í fréttunum á Íslandi. Það hafa allir skoðun þessu og sýnist sitt hverjum... ég er á báðum áttum... þetta gæti orðið soldið fyndið, mun pottþétt skila góðu atriði í næsta áramótaskaup en samt ekkert eftirsóknarverður hópur kanski til að fá til landsins. Best samt fannst mér þegar mbl kom með fyrstu fréttina um þetta áður en allt varð vitlaust því í henni stóð nánast orðrétt að almenningur þurfi ekki að óttast það að alsberar konur verði hlaupandi um götur Reykjavíkur


Posted at 19:12 by evahlin
Comments (6)  

Friday, February 02, 2007
Fréttir

Jæja fólk...

Komin tími á að uppfra þetta blog smá :)
Það er frekar langt síðan ég skrifaði hérna síðast og ótrúlega margt gerst síðan.

hmm... ég veit eiginlega ekki hvar ég að byrja
Nóvember og desember voru frekar erfiðir hjá mér. Ég byrjaði í nýrri meðferð og hún fór ekki að bera neinn árangur strax. Sem betur fer hrofir þetta nú allt betur við og ég ég er farin að sjá ágætan árangur. Það hefur komið í ljós á þessum tíma hvað ég á góða að og ég hef fengið mikinn stuðning frá ykkur öllum sem vita um hvað málið snýst. En ég hef grætt eitt gott á þessu veseni og það er að kynnast stelpu sem er að berjast í þessu sama og ég. Hún er algjör gullmoli og gaman að spjalla við hana um allt og ekkert - þó svo að hún sé u.þ.b. 12 eða 13 árum yngri en ég ;P

Samt eru síðustu mánuðir búnir að vera ýkt skemmtilegir. Í nóvember fann ég íbúðina mína - ég varð ástfangin af henni eiginlega um leið og ég skoðaði hana. Ég gerði því fljótlega tilboð í hana sem var svo samþykkt. Þann 5. des, daginn fyrir afmælið mitt fór ég svo og skrifaði undir viðeigandi pappíra og fékk afhent 17. des.
Þetta gerðist allt svo hratt og á sama tíma var allt á fullu í flugeldavinnunni.
Ég var sölustjóri í Gróubúð eins og í fyrra og allt gekk bara eins og í sögu þannig séð, góð sala þrátt fyrir keppinautinn sem ákvað að það væri svaka snjallt að opna sölustað við hliðina á mér. En þegar allt kom til alls þá held ég að við höfum bara grætt á því af því að við fengum blaða eða fréttaumfjöllun út af því nánast á hverjum degi - fínasta ókeypis auglýsing :) Ég hélt líka tvær flugeldasýningar í þessari törn sem er soldið skemmtilegt, mig langar að gera meira af því...

Á meðan ég var upptekin í flugeldasölunni frá 8 á morgnanna til 2 á nóttinni þá vann pabbi hörðum höndum hérna í íbúðinni minni :) Hann náði að standsetja hana nánast alveg á meðan - sem er æði og ég er ótrúlega heppin með alla hjálpina sem ég hef fengið með þetta og frá Frikka frænda. Svo eftir að ég varð laus frá flugeldunum fór ég í að hjálpa til við allt saman og ég flutti inn 23.janúar, daginn fyrir afmæli hjá Elfu sys ;P

Svo núna er ég bara að hafa það kósí í nýja sófanum mínum, borða mat úr nýja ískápnum mínum á meðan ég horfi á nýja sjónvarpið mig og bíð eftir að verða þreytt svo ég geti sofnað í stóra nýja rúminu mín hehehe
Þetta er bara æði og mér líður bara vel hérna. Gott að eiga sína eigin íbúð og geta gert nánast það sem maður vill þegar maður vill það.
Það er samt svo ótrúlega fyndið að flytja aftur í blokk eftir að hafa búið í raðhúsi í svona 12 ár - merkilegt hvað maður heyrir í fólki í kringum sig :P
Svo er annað sem mér fannst stórmerkilegt eftir að ég flutti. Það er skítalyktin af vatninu hérna í Reykjavík hehe ég bara hafði ekki tekið eftir þessu áður. Á Seltjarnarnesinu er heita vatnið upphitað kalt vatn svo það er ekki þessi hveralykt af því. Merkilegt...

Hmm.. já... það er svo margt búið að gerast núna undanfarið... Það er náttúrulega að stækka í vinkonuhópnum - sem er bara gaman. Það er örugglega soldið gaman að vera samferða vinkonu sinni í óléttu, gaman að hafa einhvern sem er að ganga í genum nákvæmlega sama hlutinn :P svo það verður nóg að gera í sumar hjá okkur vinkonunum :)
Samt svo merkilegt með þetta að síðasta haust hefur verið massívur fengitími. Ég þekki 6 pör sem eiga að eiga í apríl-júlí og Elfa sys þekkir svona 12 eða eitthvað. Ég var farin að óttast að þetta væri eitthvað í loftinu og ég þorði ekki að sitja neinsstaðar nema með lappirnar vel krosslagðar - ef ske kynni að þetta væri smitandi hehe

Já og það má svosem ekki gleyma því að ég fór á tvær gripasýningar í október og nóvember. Það var Herra Norðurland og svo Herra Ísland. Þetta er sooldið sérstakt sko, alveg ótrúelga merkilegir atburðir... Að fólk skuli í alvöru láta hafa sig út í þetta hehe Þetta var bara fyndið... Ég, Lilja og Ómar fórum norður á keppnina og Elfa kom með mér hérna í bænum. Í bæði skiptin skemmtum við okkur alveg konunglega - sumir gaurarnir eru bara kjánalegir hehe
Þetta er náttúrulega bara sillí keppni en bara af því að hún er svo fyndin og skemmtileg höfum við systurnar tilkynnt Lúlla bró að við munum skrá hann til keppni á næsta ári - enda hefur hann að bera mikil eðalgen sem verðskulda viðurkenningu sérfræðinga í fegurð :)
Hann tók reyndar ekki vel í það - en hann fær bara engu um þetta ráðið hehe

Nóg í bili

Þar til næst, síja ;)


Posted at 20:14 by evahlin
Comments (3)  

Wednesday, November 08, 2006
Blöðrufóbía

Eins og margir vita hef ég ýmsar fóbíur - sem betur fer ekkert sem ég ræð ekki við hehe en... Hver hefur t.d. ekki heyrt einhverjar sillí sögur af mér og hrossaflugum :P Annað sem ég óttast er t.d. blöðrur - ég veit hehe ýkt kjánalegt... en bara fyrir mitt litla líf þá get ég ekki blásið upp blöðrur nema með herkjum og við getum gleymt því að ég reyni að sprengja eina slíka og ég fæ hroll við að vera innan um nokkrar lausar blöðrur.

Í tilefni þessarar játningar og fóbíu ætla ég að sýna þetta myndband sem ég rakst á inn á www.kvikmynd.is. Ég er búin að horfa á þetta nokkrum sinnum og þvílíka snilldin :)

Annað myndband sem ég hreinlega verð að setja með - sjitt fyndið ...
Ég vil tileinka myndbandið Pálma í leitarhópnum þar sem það var hann sem benti mér á þetta ;)

Hlæ away :D

Þar til næst - síja


Posted at 23:39 by evahlin
Comments (2)  

Tuesday, October 24, 2006
Busy fly

Ég er nú búin að reyna að koma svona eins og einu bloggi inn undanfarna daga en alltaf finn ég eitthvað annað að gera eða gleymi því sem ég ætla að skrifa.

Síðasta vika var nokkuð bissí og einkenndist af vinahittingum um allan bæ og heitum réttum.

Á laugarsaginn fyrir viku síðan hélt Sandra smá teiti heima hjá sér í tilefni afmælisins. Þangað mættu nokkrir úr björgunarsveitinni og Hrund vinkona. Fólkið var nú svona almennt sómasamlegt nema ég og Hrund enda vorum við þær einu sem enduðum í miðbænum - á Viktor af öllum stöðum til að hitta Vidda. Viktor er ekkert smá slísí staður og skánar ekkert með tímanum, ótrúlegasti lýður sem hangir þarna inni og allra þjóða kvikindi.

Á mánudaginn átti Lilja afmæli og hittumst við stelpurnar heima hjá henni í Mosó í slúðri, heitum rétti og meðví. Svo gaman, fullt slúðrað og flissað. Það var t.d. ákveðið að taka saman eitthvað föndurnámskeið og kíkja á jólahlaðborð í desember - hlakka til ;)

Þriðjudagskvöldið fór í Nóahitting. Þetta er klíkan úr "gamla Nóatúni" og erum við að hittast reglulega og halda sambandi enda flest hætt að vinna þarna. Enn og aftur var slúðrað og flissað og skiptst á fréttum enda erum við ekki að hittast næstum því nógu oft. Það var samt mjög fámennt en afar góðmennt. Við ætluðum bara að hittast stutt, borða heita rétti og fara heim... enduðum að sitja vel fram yfir miðnætti áður en við neyddumst til að játa okkur sigraðar af tímanum.

Ég hitti svo nokkra líffræðinga á Krua Thai á fimmtudagskvöldið. Þetta er hópur nokkurra líffræðinga sem vorum mikið saman í Thailandi í fyrra og útskrifuðumst saman. Það er voða gaman að halda sambandi við þetta fólk. Líka gaman að heyra að við erum öll komin í vinnu tengda náminu okkar eða í frekara námi - annað en fyrir sirka ári síðan þegar við vorum flest að vinna í einhverju sem var bara alls ekkert líffræðilegt - t.d. hjá Símanum ;) En já... við hittumst annað slagið og fáum okkur thailenskan mat og förum á kaffihús á eftir.

Á föstudaginn byrjaði ráðstefnan Björgun 2006 og stóð hún fram á sunnudag og að sjálfsögðu fór ég á hana. Mikið af merkilegum fyrirlestrum og fullt af fólki úr "faginu". Á föstudagskvölduinu var svo að sjálfsögðu frír bjór fyrir okkur sem sóttum ráðstefnuna - reyndar á Viktor, en maður lætur sig nú hafa það fyrir frían bjór enda er maður bara að tapa ef maður sleppir honum ;) Þetta endaði í svona líka hörku djammi þar sem ég "fór á kostum". Ég eignaðist nýja vinkonu sem reyndi mikið við mig og reyndi að selja mér nýjan nókía síma, sagðist vinna fyrir umboðið hehe Undir lokin vorum við svo fjögur eftir úr hópnum og þegar Sandra, Óli og Teddi ætluðu heim þá var ég bara ekkert til í það. Ég ætlaði heldur betur að djamma áfram, rauk í burtu og tók stefnuna á Hressó þar sem ég hitti Ásu. Og þar sem ég er svona magnet á furðulegasta fólk þá endaði þetta náttúrulega með því að einn gaur úr Reykjarvíkurskátunum fór með mér á Hressó. Ekki leist Söndru á það og sendi út leitarhóp (Óla og Tedda) til að finna mig og var leitinni stjórnað af Söndru í gegnum gemsa í bíl á leið upp á Vatnsenda hehehe ... Að lokum fann Teddi mig, náði mér út af Hressó, kom vitinu fyrir mig og ég ákvað að koma mér bara heim - sem betur fer hehe annars hefði ég djammað fram á morgun og endað á því að taka taxa heim með Lúlla litlabró í morgunsárið.
Og óhh men þynnkan sem ég fékk á laugardaginn... það var alveg þynnka dauðans. Ég komst ekki á einn einasta fyrirlestur á laugardeginum. Þetta endaði svo reyndar sem tveggja daga þynnka því ég var ennþá þunn á sunnudagsmorgninum þegar ég vaknaði og drullaðist á ráðstefnuna.

En allavega... nóg að gera. Gæti talað um hvalveiðarnar líka. Ég upplifði "stóra stund" þegar Hvalur 9 hélt á hvalveiðar og enn stærri stund þegar hann landaði langreyðinni sem þeri veiddu. Ég er hlynt hvalveiðum ef þær eru stundaðar á skipulegan hátt og er stjórnað vel. Ég get ekki séð að það hafi einhverjar drastískar afleyðingar fyrir hvalastofnana að veiða þessi innan við 100 dýr sem á að veiða. Svo lengi sem veiðarnar eru ekki stundaðar hérna inn á fjörðum og flóum þá á þetta ekki að hafa mikil eða nein áhrif á hvalaskoðunarfyrirtækin. En hins vegar má deila um það hvort við þurfum að veiða öll þessi dýr. Það fengust um 20 tonn af kjöti af þessari fyrstu langreyð og ég get bara ekki ýmindað mér að við náum að torga öllu þessu kjöti sem á eftir að fást til viðbótar með því að veiða meira. Ekki getum við flutt það út til Japans eins og Kristján Loftsson segir því þeir eru nú þegar í vandræðum með að innbyrða allt kjötið sem þeir veiða.
Sumir vilja meina að það sé nauðsynlegt að veiða hvalinn vegna þess að þeir hafa svo mikil áhrif á fiskistofnana... Það er nú bara meira ruglið. Ef það ætti að kenna einhverjum um ástand fiskistofnanna þá er það okkur sjálfum að kenna fyrir lélega veiðistjórn og gallað kvótakerfi. Hmmm... gæti nú sagt sitthvað fleira um þetta en ætli það hafi nokkur gaman af því að lesa um þetta hehe

Núna er október að verða búinn og styttist í jólin og áramótin. Fyrsti sölustjórafundurinn var haldinn í gær. Ég mun sjá um flugelsasöluna í Gróubúð eins og í fyrra. Ekki gleyma því þegar kemur að því að keupa flugeldana að styrkja björgunarsveitirnar og kíkja til mín í Gróubúð ;)

Hmm... eitthvað fleira sem ég get sagt... líklega... man ekki í bili :)
Það verður þá kanski bara styttra í næsta blogg í staðinn.

Þar til næst - síja ;)


Posted at 15:56 by evahlin
Comments (2)  

Next Page